Andrea Bergsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 19. 2020 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Andrea, Saga & Colorado State í 14. sæti í Louisiana

Andrea Bergsdóttir, GKG og Saga Traustadóttir og lið þeirra í bandaríska háskólagolfinu, Colorado State tóku þátt í Allstate Sugar Bowl Intercollegiate háskólamótinu.

Mótið fór fram dagana 16.-18. febrúar í English Turn Golf & Country Club, New Orleans, Louisiana og lauk því í gær.

Þátttakendur voru 84 frá 15 háskólum.

Andrea var á 2. besta skori Colorado State; lék á samtals 9 yfir pari, 228 höggum (75 77 76) og varð T-50.

Saga átti ekki sitt besta mót; lék á samtals 19 yfir pari, 238 höggum (82 81 75) og varð T-79.

Colorado State varð í 14. sæti í liðakeppninni.

Næsta mót Colorado State er 9. mars n.k.

Í aðalmyndaglugga: Andrea Bergsdóttir, GKG