
Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra varð í 4. sæti á Cards Challenge mótinu
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og Texas State varð í gær í 4. sæti á Louisiana Cards Challenge mótinu, líka nefnt Sir Pizza Cards Challenge, en mótið var 2 daga mót, sem fór fram 27.-28. febrúar á golfvelli Weston Hills Country Club, nálægt Miami, í Flórída. Valdís Þóra og liðsfélagi hennar Iman Nordin deildu reyndar 4. sætinu ásamt 2 kylfingum úr sigurliði mótsins, þeim Önu Menendez og Amöndu Baker úr Norður-Karólínu háskóla. Valdís Þóra og Iman léku best allra í Texas State liðinu.
University of Louisville var gestgjafi mótsins.
Alls spilaði Valdís Þóra á +3 yfir pari, samtals 219 höggum (74 70 75) . Texas State varð í 2. sæti en alls tóku lið 14 háskóla þátt í mótinu (þ.e. Louisville, Missouri, Texas State, Kansas, NC State, Florida International, Cincinnati, Miami, UNCW, South Florida, Memphis, East Tennessee, Delaware og Southern Mississippi). Norður-Karólíu háskóli varð í 1. sæti og lið University of Miami í 3. sæti.
Valdís Þóra og félagar settu skólamet, en heildarskor liðsins á lokahringnum var +1 högg yfir pari eða 289 högg, en þetta er besta skor liðsins frá byrjun. Heildarskor liðsins í mótinu var 880 högg, sem er besta skor liðsins frá því það tók þátt í bandaríska háskólagolfinu.
Til þess að sjá úrslitin á Louisiana Cards Challenge mótinu, líka nefnt Sir Pizza Cards Challenge mótið smellið HÉR:
- október. 1. 2023 | 16:16 Ryder Cup 2023: Áhangendur streymdu á Marco Simone eftir sigur liðs Evrópu 16,5-11,5
- október. 1. 2023 | 15:40 Ryder Cup 2023: Fleetwood innsiglar sigur liðs Evrópu!!!
- október. 1. 2023 | 15:10 Ryder Cup 2023: Hovland, Rory og Hatton unnu sínar viðureignir – Rahm hélt jöfnu – Vantar bara 1/2 stig núna!!!
- október. 1. 2023 | 12:00 Ryder Cup 2023: Tvímenningsleikir sunnudagsins
- október. 1. 2023 | 08:00 Ryder Cup 2023: Evrópa 10,5 – Bandaríkin 5,5 e. 2. dag
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023