Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2012 | 00:15

Bandaríska háskólagolfið: Ragna Björk fór holu í höggi í Virginíu

Á Kingsmill Resort River golfvellinum í Williamsburg, Virginíu fer fram C&F Bank Intercollegiate. Meðal þátttakenda er Ragna Björk Ólafsdóttir, GK og lið hennar St. Leo.  Ragna Björk vann það frækilega afrek að fara holu í höggi, en draumahöggið sló hún á par-3 5. brautinni á Kingsmill á 2. hring sínum í mótinu.

Mótið stendur dagana 18.-20. mars 2012 og þáttakendur eru 110 frá 21 háskóla. Ragna Björk deilir 22. sætinu með Stephanie Eybers frá St. John.  Lið Rögnu Bjarkar, St. Leo er í 2. sæti af háskólaliðunum.

Golf 1 óskar Rögnu Björk innilega til hamingju með ásinn og góðs gengis á morgun!

Til þess að sjá stöðuna fyrir lokahringinn á C&F Bank Intercollegiate smellið HÉR: