Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 10. 2012 | 09:00

Back9 nýja golflífstíls sjónvarpsstöðin í Bandaríkjunum

Golf 1 kynnti til sögunnar nýja golflífstíls sjónvarpsstöð í Bandaríkjunum, hér fyrir skemmstu en Clint Eastwood  er m.a. hluthafi í henni og hefir áhrif á efnisval og dagskrá.  Sjá HÉR: Stöðin var fyrst kynnt til sögunnar fyrir 2 árum á PGA vörusýningunni í Orlandó, Flórída. Meðal þeirra sem kynntu stöðina var fyrrum LPGA kylfingurinn ástralski Anna Rawson, framkvæmdastjórinn Jamie Bosworth og kona hans Jenn. Jamie sagði m.a. í ræðu í opnunarpartýinu að stöðin myndi vera með sérstaka áherslu á kvennagolf og sinna börnum og unglingum  í golfi meira – sem á sér samsvörun við stefnu Golf 1 og munum við því fylgjast náið með þessari nýjustu viðbót, Back9,  í golfheiminum.

Með því að smella hér má sjá myndskeið af kynningu Back9: