Frændsystkinin og tveir bestu kylfingar landsins: Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir í Keili. Þau unnu 1. mótið styrktu af Erninum á Eimskipsmótaröðinni 2011. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2016 | 06:00

Axel og Guðrún Brá komust ekki gegnum niðurskurð

Axel Bóasson, GK, komst ekki í gegnum niðurskurð á Borre Open í Noregi, en mótið er hluti af Ecco Tour.

Axel lék á 3 yfir pari (74 75), en niðurskurður var miðaður við 1 undir pari og Axel því 5 höggum frá því að komast í gegn.

Sjá má stöðuna á Borre Open með því að SMELLA HÉR:

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, tók þátt í úrtökumótinu fyrir Opna breska áhugamannamótið og komst ekki gegnum niðurskurð.

Guðrún Brá (79 78) hafnaði í 74. sæti og komst ekki áfram.

Sjá má úrslitin úr höggleikshluta Opna breska áhugamannamóts kvenna með því að SMELLA HÉR: (45 héldu áfram og spiluðu í holukeppnishlutanum) en Guðrún Brá var ekki þar á meðal.