Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2017 | 11:00

Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2017 (4): Helga Signý sigraði í fl. 12 ára og yngri hnáta

Fjórða Áskorendamóti Íslandsbanka 2017 lauk á Garðavelli á Akranesi í gær, fimmtudaginn 13. júlí, með þáttöku um 65 barna og unglinga.

Frábærar vallaraðstæður og gott veður settu svip sinn á mótið sem tókst afar vel og lauk með grillveislu í boði Golfklúbbsins Leynis og verðlaunaafhendingu í golfskála.

Á Áskorendamótaröðinni keppa kylfingar sem vilja öðlast meiri keppnisreynslu áður en haldið er inn á sjálfa Íslandsbankamótaröðina.

Þeir sem voru 12 ára og yngri spiluðu 9 holur. Sigurvegari í flokki 12 ára og yngri hnáta varð Helga Signý Pálsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Hún lék fyrstu 9 holur á Garðavelli á 49 glæsihöggum!

Úrslit í hnátuflokki 12 ára og yngri á 4. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka urðu eftirfarandi: 

1 Helga Signý Pálsdóttir GR 24 F 0 49 49 13 49 49 13
2 Ester Amíra Ægisdóttir GK 28 F 0 53 53 17 53 53 17
3 Pamela Ósk Hjaltadóttir GR 28 F 0 57 57 21 57 57 21
4 Eva Kristinsdóttir GM 28 F 0 60 60 24 60 60 24
5 María Rut Gunnlaugsdóttir GM 28 F 0 60 60 24 60 60 24
6 Brynja Lóa Bjarnþórsdóttir GM 28 F 0 70 70 34 70 70 34