Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 20. 2017 | 05:00

Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2017(3): Atli Teitur sigraði í piltaflokki (15-18 ára)

Þriðja mót tímabilsins á Áskorendamótaröð Íslandsbanka fór fram á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslands á Gufudalsvelli hjá Golfklúbbi Hveragerðis. Keppendur voru allir ræstir út á sama tíma.

Jussi Pitkänen afreksstjóri GSÍ afhenti verðlaunin og í mótslok var boðið upp á létta grillveislu.

Aðstæður í Hveragerði voru nokkuð krefjandi en mikil úrkoma gerði keppendum erfitt um vik – en rúmlega 50 keppendur tóku þátt.

Áskorendamótaröðin er ætluð þeim kylfingum sem vilja öðlast meiri keppnisreynslu áður en haldið er inn á sjálfa Íslandsbankamótaröðina.

Úrslit í flokki 15-18 ára pilta, sem spiluðu 18 holur, voru eftirfarandi:

1. Atli Teitur Brynjarsson, GL 82 högg