Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2017 | 20:00

Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2017 (5): Þorgeir Örn sigraði í strákaflokki 14 ára

Áskorendamótaröð Íslandsbanka fór fram á Jaðarsvelli laugardaginn 29. júlí við ágætis aðstæður.

Keppendur komu víðsvegar að til þess að keppa á þessari skemmtilegu mótaröð sem er ætluð þeim sem vilja öðlast keppnsreynslu áður en haldið er á sjálfa Íslandsbankamótaröðina.

Heimir Örn Árnason framkvæmdastjóri GA og Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ afhentu verðlaunin í mótslok að lokinni pylsuveislu sem keppendum er boðið í eftir hvert einasta mót á Áskorendamótaröðinni.

Yngri kylfingarnir (10-12 ára) léku 9 holur (25 þátttakendur), meðan þeir eldri (12-18 ára) léku 18 holur (11 þátttakendur).

Sigurvegari í strákaflokki 14 ára og yngri varð Þorgeir Örn Bjarkason, GL, en sigurskor hans voru 92 högg.

Úrslit í flokki 14 ára og yngri stráka urðu eftirfandi:

1 Þorgeir Örn Bjarkason GL 16 F 43 49 92 21 92 92 21
2 Veigar Heiðarsson GHD 16 F 47 46 93 22 93 93 22
3 Skúli Gunnar Ágústsson GA 16 F 47 49 96 25 96 96 25
4 Bogi Sigurbjörnsson GSS 20 F 50 50 100 29 100 100 29
5 Daði Már Alfreðsson GL 23 F 51 55 106 35 106 106 35
6 Ólafur Jónsson GK 24 F 60 53 113 42 113 113 42