Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2017 | 22:45

Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2017 (5): Árni Stefán sigraði í fl. hnokka 12 ára og yngri

Áskorendamótaröð Íslandsbanka fór fram á Jaðarsvelli laugardaginn 29. júlí við ágætis aðstæður.

Keppendur komu víðsvegar að til þess að keppa á þessari skemmtilegu mótaröð sem er ætluð þeim sem vilja öðlast keppnsreynslu áður en haldið er á sjálfa Íslandsbankamótaröðina.

Heimir Örn Árnason framkvæmdastjóri GA og Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ afhentu verðlaunin í mótslok að lokinni pylsuveislu sem keppendum er boðið í eftir hvert einasta mót á Áskorendamótaröðinni.

Yngri kylfingarnir (10-12 ára) léku 9 holur (25 þátttakendur), meðan þeir eldri (12-18 ára) léku 18 holur (11 þátttakendur).

Sigurvegari í hnokkaflokki 12 ára og yngri varð Árni Stefán Friðriksson, en hann hafði betur gegn Tómas Bjarka Guðmundsson, GSS, en báðir léku 9 holur á 18 yfir pari, 54 höggum.

Úrslit í flokki 12 ára og yngri hnokka urðu eftirfandi:

1 Árni Stefán Friðriksson GHD 24 F 0 54 54 18 54 54 18
2 Tómas Bjarki Guðmundsson GSS 24 F 0 54 54 18 54 54 18
3 Snævar Bjarki Davíðsson GHD 34 F 0 55 55 19 55 55 19
4 Aron Ingi Gunnarsson GHD 24 F 0 57 57 21 57 57 21