Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2017 | 01:30

Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2017 (1): Pamela Ósk sigraði í flokki 10 ára og yngri hnáta

Alls tóku 54 börn og unglingar þátt í 1. móti Áskorendamótaraðarinnar sem fram fór á Svarfhólsvelli, Selfossi, laugardaginn 27. maí sl.

Keppt var í 8 flokkum 10 ára og yngri og 12 ára og yngri beggja kynja og léku þeir flokkar 9 holur.

Síðan var einnig keppt í flokkum 14 ára og yngri og 15-18 ára í báðum kynkum, en þeir flokkar léku 18 holur.

Í flokki 10 ára og yngri hnáta sigraði Pamela Ósk Hjaltadóttir, GR. Hún lék 9 holurnar á 10 yfir pari, 45 glæsihöggum!

Sjá má lokastöðuna í flokki 10 ára og yngri hnáta á 1. móti Áskorendamótaröð Íslandsbanka hér að neðan:

1 Pamela Ósk Hjaltadóttir GR 34 F 0 45 45 10 45 45 10
2 Fjóla Margrét Viðarsdóttir GS 42 F 0 50 50 15 50 50 15
3 Lilja Grétarsdóttir GR 41 F 0 52 52 17 52 52 17
4 Ylfa Vár Jóhannsdóttir GS 55 F 0 55 55 20 55 55 20
5 Katrín Embla Hlynsdóttir GOS 55 F 0 58 58 23 58 58 23
6 Sigrún Helga Pálsdóttir GOS 55 F 0 59 59 24 59 59 24
7 Kara Sóley Guðmundsdóttir GR 55 F 0 67 67 32 67 67 32
8 Ebba Guðríður Ægisdóttir GK 55 F 0 67 67 32 67 67 32

Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ og Jussi Pitkanen afreksstjóri GSÍ afhentu verðlaunin á Áskorendamótaröðinni á Selfossi.