Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2017 | 07:00

Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2017 (1): Katrín Sól sigraði í stelpuflokki

Alls tóku 54 börn og unglingar þátt í 1. móti Áskorendamótaraðarinnar sem fram fór á Svarfhólsvelli, Selfossi, laugardaginn 27. maí sl.

Keppt var í 8 flokkum 10 ára og yngri og 12 ára og yngri beggja kynja og léku þeir flokkar 9 holur.

Síðan var einnig keppt í flokkum 14 ára og yngri og 15-18 ára í báðum kynkum, en þeir flokkar léku 18 holur.

Í flokki 14 ára og yngri stelpna sigraði Katrín Sól Davíðsdóttir, GM . Hún lék 18 holurnar á flottum 112 höggum!

Sjá má lokastöðuna í flokki 14 ára og yngri stelpna á 1. móti Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2017 hér að neðan:

1 Katrín Sól Davíðsdóttir GM 28 F 58 54 112 42 112 112 42
2 Berglind Erla Baldursdóttir GM 33 F 61 58 119 49 119 119 49
3 Laufey Kristín Marinósdóttir GKG 49 F 57 69 126 56 126 126 56
4 Lovísa Björk Davíðsdóttir GS 54 F 73 62 135 65 135 135 65

Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ og Jussi Pitkanen afreksstjóri GSÍ afhentu verðlaunin á Áskorendamótaröðinni á Selfossi.