Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2017 | 08:00

Áskorendamótaröð Íslandsbanka (1): Bára Valdís sigurvegari stúlknaflokks

Alls tóku 54 börn og unglingar þátt í 1. móti Áskorendamótaraðarinnar sem fram fór á Svarfhólsvelli, Selfossi, laugardaginn 27. maí sl.

Keppt var í 8 flokkum 10 ára og yngri og 12 ára og yngri beggja kynja og léku þeir flokkar 9 holur.

Síðan var einnig keppt í flokkum 14 ára og yngri og 15-18 ára í báðum kynkum, en þeir flokkar léku 18 holur.

Í flokki 15-18 ára stúlkna sigraði Bára Valdís Ármannsdóttir, GL . Hún lék 18 holurnar 24 yfir pari, 94 höggum!

Því miður voru engir keppendur í flokki 15-18 ára pilta að þessu sinni.

Sjá má lokastöðuna í flokki 15-18 ára stúlkna á 1. móti Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2017 hér að neðan:

1 Bára Valdís Ármannsdóttir GL 25 F 46 48 94 24 94 94 24
2 Erna Rós Agnarsdóttir GS 36 F 54 49 103 33 103 103 33
3 Klara Kristvinsdóttir GL 40 F 63 55 118 48 118 118 48

Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ og Jussi Pitkanen afreksstjóri GSÍ afhentu verðlaunin á Áskorendamótaröðinni á Selfossi.