Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 14. 2017 | 17:30

Áskorendamótaröð Evrópu: Erfið byrjun hjá Birgi Leif á Írlandi

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, tekur þátt í Irish Challenge, sem er mót á Áskorendamótaröð Evrópu.

Hann fór út kl. 13:20 að staðartíma í morgun, 14. september (þ.e. kl. 12:20 að íslenskum tíma) af 10. teig í Mount Wolseley Hotel Spa and Golf Resort, í Carlow á Írlandi.

Með Birgi Leif í ráshóp voru litli bróðir nr. 11 á heimslistanum Brooks Koepka, þ.e. Chase Koepka og Svíinn Niclas Johansson.

Birgir Leifur lék á samtals 6 yfir pari, 78 höggum og átti því afar erfiða byrjun, er T-106. Birgir fékk aðeins 1 fugl og 7 skolla. Hann verður að eiga gríðarlega góðan hring á morgun til þess að komast í gegnum niðurskurð!

Sjá má stöðuna á Irish Challenge með því að SMELLA HÉR: