Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2017 | 22:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur T-55 e. 1. dag á Made in Denmark mótinu

Birgir Leifur Hafþórsson tekur þátt í Made in Denmark Challenge – presented by Ejner Hessel, en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.

Mótið stendur dagana 22.-25. júní 2017.

Eftir 1. dag er Birgir Leifur T-55 þ.e. deilir 55. sætinu með 8 kylfingum og rétt er fyrir ofan niðurskurðarlínuna eins og sakir standa.

Hann lék 1. hring á 1 undir pari, 71 höggi – á hring þar sem hann fékk 1 fugl og 17 pör.

Til þess að sjá stöðuna á Made in Denmark Challenge SMELLIÐ HÉR: