Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2017 | 10:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur T-34 í Oman e. 3. dag

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG ,er fyrsti íslenski kylfingurinn sem spilar á lokamóti Áskorendamótaraðar Evrópu.

Mótið nefnist NBO Golf Classic Grand Finar og fer fram á Al Mouj Golf, í Muscat, Oman, dagana 1.-4. nóvember 2017.

Í dag, 3. keppnisdag,  lék Birgir Leifur fyrsta hring sinn í mótinu undir pari, þ.e. á 1 undir pari, 71 höggi; á hring þar sem hann fékk 3 fugla , 13 pör og 2 skolla.

Fyrir lokahringinn sem spilaður verður á morgun er Birgir Leifur T-34.

Hér má sjá stöðuna í Al Mouj Golf SMELLIÐ HÉR:

Hér má sjá stigalista Áskorendamótaraðarinnar SMELLIÐ HÉR:

***************************************************************

Þetta mót er lokatækifæri fyrir kylfingana að komast í hóp 15 efstu á peningalistanum og tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á næsta tímabili. Mótinu lýkur á laugardaginn og þá verður það ljóst hvaða 15 kylfingar komast alla leið inn á mótaröð þeirra bestu í Evrópu.

Eins og áður segir eru 45 keppendur og koma þeir frá 23 mismunandi þjóðum. Tíu þeirra koma frá Englandi, en þetta er eins og segir í fyrsta sinn sem íslenskur kylfingur keppir á þessu lokamóti Áskorendamótaraðarinnar.

Birgir Leifur sigraði í fyrsta sinn á ferlinum á Áskorendamóti á þessu tímabil og er hann er einn af 19 sigurvegurum á þessu tímabili sem er á meðal keppenda í Oman.

Aaron Rai frá Englandi hefur sigrað á þremur mótum á tímabilinu. Hann hefur með árangri sínum tryggt sér takmarkaðann keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á næsta tímabili.

Mótið fer fram á Al Mouj vellinum sem Ástralinn Greg Norman hannaði.

Birgir Leifur er í 32. sæti á peningalista mótaraðarinnar með 55.781 stig eða Evrur í verðlaunafé á þessu tímabili. Sjöfaldi Íslandsmeistarinn er 26.838 Evrum frá 15. sætinu og þarf því að að vera í efstu sætunum á þessu lokamóti til að gera atlögu að einu af 15 efstu sætunum á stigalistanum.

Texti i neðri part greinar: GSÍ