Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2017 | 18:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur lauk keppni T-63 á Prague Challenge

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lauk í dag við að spila lokahringinn á Prague Golf Challenge, en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.

Birgir Leifur lék samtals  á 5 undir pari, 283 höggum (69 67 72 75)

Birgir Leifur lauk keppni T-63.

Íslandsvinurinn enski Garrick Porteous sigraði á samtals 24 undir pari.

Sjá má lokastöðuna á Prague Golf Challenge með því að SMELLA HÉR: