Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2017 | 15:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur flaug í g. niðurskurð í Kazakhstan

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG flaug í dag, 22. september 2017, í gegnum niðurskurð á Kazakhstan Open, sem er mót á Áskorendamótaröð Evrópu.

Hann lék á samtals 3 undir pari, 141 höggi (72 69). Glæsilegur!!!

Niðurskurður var miðaður við 2 undir pari.

Sjá má stöðuna og fylgjast með Birgi Leif á skortöflu með því að SMELLA HÉR:

Verðlaunaféð á Kazakhstan Open er með því hæsta sem gerist á Áskorendamótaröðinni og nánast allir sterkustu leikmenn mótaraðarinnar keppa á þessu móti, sem fram fer á Nurtau vellinum í Almaty.

Sjá má eldri kynningu Golf 1 á Nurtau golfvellinum í Kazakhstan með því að SMELLA HÉR:

Vonandi að Birgir Leifur spili sem best nú um helgina!!!

Birgir Leifur sigraði sem kunnugt er á móti sem fram fór Frakklandi fyrir skemmstu og var það fyrsti sigur hans á Áskorendamótaröðinni. Með sigrinum tryggði Birgir Leifur sér keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni næstu tvö tímabil.

Hann er í harðri baráttu að komast í hóp 15 efstu á peningalista Áskorendamótaraðarinnar – sem tryggir keppnisrétt á sjálfri Evrópumótaröðinni á næsta tímabili.

Birgir er sem stendur í 19. sæti en hann var í 16. sæti fyrir mótið sem fram fór í síðustu viku á Írlandi – þar sem Birgir Leifur komst ekki í gegnum niðurskurðinn.