Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2017 | 12:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur á 75 e. 1. dag í Sameinuðu arabísku furstadæmunum

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG tekur þátt í Ras Al Kaimah Challenge, sem er mót vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu.

Mótsstaður er Al Hamra golfklúbburinn í Ras Al Kaimah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Birgir kom í hús á 3 yfir pari, 75 höggum; fékk 1 fugl og 4 skolla.

Sá sem leiðir eftir 1. dag er Hollendingurinn Jurrian Van der Vaart, en hann lék 1. hring á 8 undir pari, 64 höggum og öðru sætinu deila þeir Oscar Stark frá Svíþjóð og Chase, bróðir Brooks Koepka á 6 undir pari, 66 höggum.

Sjá má stöðuna á Ras Al Kaimah Challenge með því að SMELLA HÉR: