Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2017 | 10:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur á 72 höggum 1. dag Hauts de France Golf Open!

Birgir Leifur Hafþórsson tekur þátt í Hauts de France Golf Open mótinu, sem er hluti Áskorendamótaraðar Evrópu.

Mótið fer fram í Saint Omer golfklúbbnum í Lumbres, Frakklandi og stendur dagana 15.-18. júlí 2017.

Birgir Leifur lék 1. hring á 1 yfir pari, 72 höggum.

Skorkort Birgis Leifs var ansi skrautlegt, en hann fékk 1 örn, 2 fugla, 10 pör og 5 skolla.

Til þess að sjá stöðuna á Hauts de France Golf Open SMELLIÐ HÉR: