Birgir Leifur Hafþórsson, GKG. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2015 | 08:00

Áskorendamótaröðin: Birgir Leifur leikur á Spáni

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, Íslandsmeistari í golfi 2014, hefur keppni á móti á fimmtudaginn á Spáni sem er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.

Fred Olsen Challenge mótið fer fram á Kanaríeyjum á La Gomera vellinum.

Birgir Leifur er í 107. sæti á peningalista Áskorendamótaraðarinnar en hann hefur leikið á fjórum mótum á þessu tímabili.

Hann varð áttundi á KPMG mótinu í Hollandi en hann endaði í 58., 42. og 55. sæti

Í fyrra fékk Birgir Leifur aðeins tækifæri á einu móti á Áskorendamótaröðinni en árið 2011 lék hann á átta mótum og árið 2006 fékk hann alls 17 mót.