Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2014 (3): Nína sigraði í stelpuflokki
Í dag fór fram í „bland í poka“ veðri, 3. mót á Áskorendamótaröð Íslandsbanka. Það rigndi eina stundina og þá næstu var komið indælis veður með sól og blíðu.
Mótið fór fram á Víkurvelli í Stykkishólmi. Völlurinn er í ágætis ástandi, en unnið að viðgerðum á honum á ýmsum stöðum. Umhverfið og umgjörðin er dásamleg og mikið fuglalíf á vellinum.
Stykkishólmskirkja sést víðsvegar af vellinum.
En aftur að mótinu. Skráðir voru 30 til leiks en aðeins 26 luku keppni. Afleitt er að keppendur vantaði í elsta aldursflokk pilta og stúlkna 17-18 ára og eins voru engir þátttakendur að þessu sinni í telpuflokki 15-16 ára.
Þrír keppendur voru í stelpuflokki: systurnar Nína Margrét og Ásdís Valtýsdætur, sem báðar eru í GR og Thelma Björt Jónsdóttir, GK.

Sigurvegarar frá vinstri: Ásdís Valtýsdóttir, GR, 2. sæti, Thelma Björt Jónsdóttir, GK, 3. sæti og sigurvegarinn Nína Björt Valtýsdóttir, GR. Mynd: Golf 1
Svo fór að Nína Margrét stóð uppi sem sigurvegari, lék Víkurvöll á 109 glæsihöggum!
Úrslit í stelpuflokki á 3. móti Áskorendamóti Íslandsbanka voru eftirfarandi:
| 1 | Nína Margrét Valtýsdóttir | GR | 28 | F | 55 | 54 | 109 | 37 | 109 | 109 | 37 |
| 2 | Ásdís Valtýsdóttir | GR | 28 | F | 59 | 55 | 114 | 42 | 114 | 114 | 42 |
| 3 | Thelma Björt Jónsdóttir | GK | 28 | F | 59 | 72 | 131 | 59 | 131 | 131 | 59 |
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
