Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2014 | 22:00

Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2014 (6): Kristófer Tjörvi sigraði á 4. móti sínu í strákaflokki – e. bráðabana við Svein Andra – Úrslit

Sjötta og síðasta mótið í Áskorendamótaröð Íslandsbanka fór fram í dag á Bakkakotsvelli hjá GOB, í Mosfellsdal.

Golf 1 var á staðnum og má sjá myndaseríu með því að SMELLA HÉR:

Þátttakendur voru 29. Á besta skorinu í mótinu voru tveir strákar, sem báðir eru synir golfkennara og afar mikil efni báðir tveir: Kristófer Tjörvi Einarsson, GV sonur Einars Gunnarsson, golfkennara við Golfklúbb Vestmannaeyja og Sveinn Andri Sigurpálsson, GKJ, sonur Sigurpáls Geirs Sveinssonar, margfalds Íslandsmeistara í golfi og íþróttastjóra GKJ.

Kristófer Tjörvi Einarsson, GV. Mynd: Golf 1

Kristófer Tjörvi Einarsson, GV. Mynd: Golf 1

Kristófer Tjörvi er aldeilis búinn að standa sig vel í sumar; er búinn að sigra á 4 mótum Áskorendamótaraðarinnar í strákaflokki: á 3. mótinu í Stykkishólmi; á 4. mótinu að Hellishólum; á 5. mótinu á Húsavík og síðan í dag á Bakkakotsvelli.

En í dag öfugt við hin mótin, þar sem Kristófer Tjörvi hefir sigrað á, varð hann að hafa fyrir sigrinum og gat hann í raun fallið hvorum meginn.

Hann varð nefnilega að fara í bráðabana við Svein Andra Sigurpálsson, GKJ, en báðir voru á besta skorinu eftir 18 holur, 81 höggi!

Mikið ofboðslega var gaman að fylgjast með þeim báðum, en bráðabaninn var virkilega spennandi.

Hann hófst á par-3 9. holu Bakkakotsvallar og báðir fengu þeir Kristófer Tjörvi og Sveinn Andri par.

Sveinn Andri Sigurpálsson, GKJ. Mynd: Golf 1

Sveinn Andri Sigurpálsson, GKJ. Mynd: Golf 1

Síðan var haldið á 1. braut Bakkakotsvallar (2. holu bráðabanans), sem er par-4 hola öll upp í móti með upphækkaðri flöt.  Sveinn Andri sló bolta sínum til hægri og setti boltann rétt fyrir framan hraunbreiðu og átti því erfiðara innáhögg á flöt.  Kristófer Tjörvi fór vinstra meginn og eiginlega allt opið inn á flöt.  Sveinn Andri sló síðan bolta sínum of laust, boltinn hitti bakkann og rúllaði niður brekkuna. Kristófer Tjörvi sló beint inn á flöt og nú hélt maður að hann myndi ná að sigra. En Sveinn Andri gaf sig ekki.  Hann átti glæsilegt vipp inn á flöt og setti boltann u.þ.b. 2 metra frá holu. Kristófer Tjörvi átti heldur langt fuglapútt og púttaði boltann því miður fremur fast en flatir Bakkakotsvallar eru flughálar og hraðar og auk þess var púttið niður á við.  Allt í einu var allt orðið jafnt og staða Kristófers Tjörva lakari, því hann átti lengra par-pútt en Sveinn Andri.  Sveinn Andri náði ekki að setja niður par-pútt sitt – báðir fengu skolla og því var haldið á 2. braut Bakkakotsvallar (3. braut bráðabana).

A 2. brautinni sló Sveinn Andri með löngu járni en Kristófer Tjörvi dró upp dræverinn og átti hann því högg nær holu.  Sveinn Andri setti bolta sinn til vinstri við flöt í 2. höggi meðan Kristófer Tjörvi sló bolta sínum í tré sem eru hægra meginn við flötina. Nú leit út fyrir að Sveinn Andri ætti heldur auðveldari leik, en Kristófer Tjörvi átti algjört galdrahögg innan úr trjánum, sem hann setti innan við meter frá holu.  Sveinn Andri sló of stutt, missti parið og síðan skollann og gaf síðan Kristófer Tjörva leikinn og þar með sigurinn.

Sannir heiðursmenn, sem gaman var að fylgjast með og á eflaust eftir að kveða mikið að í framtíðinni!!!

Úrslit á 6. móti Áskorendamótaraðarinnar:

Úrslit í strákaflokki 14 ára og yngri:

1 Sveinn Andri Sigurpálsson GKJ 7 F 40 41 81 11 81 81 11
2 Kristófer Tjörvi Einarsson GV 2 F 39 42 81 11 81 81 11
3 Orri Snær Jónsson NK 9 F 38 44 82 12 82 82 12
4 Stefán Atli Hjörleifsson GK 20 F 42 42 84 14 84 84 14
5 Björn Viktor Viktorsson GL 11 F 43 42 85 15 85 85 15
6 Haukur Páll Hallgrímsson GOS 14 F 44 43 87 17 87 87 17
7 Aron Emil Gunnarsson GOS 11 F 46 42 88 18 88 88 18
8 Steingrímur Daði Kristjánsson GK 12 F 45 45 90 20 90 90 20
9 Máni Páll Eiríksson GOS 11 F 46 45 91 21 91 91 21
10 Einar Andri Víðisson GR 15 F 44 47 91 21 91 91 21
11 Jóhannes Sturluson GKG 16 F 46 49 95 25 95 95 25
12 Gunnar Davíð Einarsson GL 20 F 49 47 96 26 96 96 26
13 Bjarki Snær Halldórsson GK 18 F 50 49 99 29 99 99 29
14 Jóhann Þór Arnarsson GK 15 F 48 56 104 34 104 104 34
15 Sindri Snær Kristófersson GKG 14 F 49 60 109 39 109 109 39
16 Kristófer Elí Harðarson GR 24 F 59 56 115 45 115 115 45
17 Sverrir Óli Bergsson GOS 24 F 63 53 116 46 116 116 46
18 Fannar Grétarsson GR 24 F 66 59 125 55 125 125 55
Sigrún Linda ásamt kaddý. Mynd: Golf 1

Sigrún Linda ásamt kaddý. Mynd: Golf 1

Úrslit í stelpuflokki 14 ára og yngri:

1 Sigrún Linda Baldursdóttir GKJ 25 F 44 53 97 27 97 97 27
2 Thelma Björt Jónsdóttir GK 28 F 55 51 106 36 106 106 36
3 Guðrún Fema Sigurbjörnsdóttir 25 F 50 56 106 36 106 106 36
4 Inga Lilja Hilmarsdóttir GK 28 F 57 51 108 38 108 108 38
5 Brynja Valdís Ragnarsdóttir GR 28 F 55 60 115 45 115 115 45
6 Jóna Karen Þorbjörnsdóttir GK 28 F 58 63 121 51 121 121 51
7 Margrét Karen Olgeirsdóttir GKJ 28 F 56 65 121 51 121 121 51
8 Katrín Lind Kristjánsdóttir GR 28 F 63 59 122 52 122 122 52
9 Kristín Sól Guðmundsdóttir GKJ 28 F 69 64 133 63 133 133 63
Arnar Gauti Arnarsson, GK. Mynd: Í einkaeigu

Arnar Gauti Arnarsson, GK. Mynd: Í einkaeigu

Úrslit í drengjaflokki 15-16 ára:

1 Arnar Gauti Arnarsson GK 10 F 50 48 98 28 98 98 28
2 Einar Sveinn Einarsson GS 14 F 53 49 102 32 102 102 32