Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2019 | 07:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst varð í 9. sæti á Írlandi!!!

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, tók þátt í móti vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu, Irish Challenge.

Hann lauk keppni í 9. sæti, sem er stórglæsilegur árangur!

Mikið rigningarveður varð til þess á 4. hring var aflýst og var skor fyrstu 3 dagana látið standa.

Guðmundur Ágúst spilaði fyrstu 3 hringina á samtals 7 undir pari, 209 höggum (70 67 72).

Þetta er besti árangur Guðmundar Ágústs á Áskorendamótaröð Evrópu til þessa og fer hann úr 133. stigalistans í 109. sætið! Auk þess vann hann sér inn u.þ.b. kr. 650.000 í verðlaunafé!!! Hann er glæsilegur Íslandsmeistarinn í höggleik 2019 – Guðmundur Ágúst Kristjánsson!!!

Það var spænski kylfingurinn Emilio Cuartero Blanco, sem sigraði í Irish Challenge eftir bráðabana við Svíann Oscar Lengden, en báðir voru þeir jafnir á 11 undir pari, eftir 54 spilaðar holur.  Sigurinn kom með fugli á 3. holu bráðabanans.