Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 16. 2018 | 22:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Erfið byrjun hjá Axel á N-Írlandi

Íslandsmeistarinn í höggleik 2018, Axel Bóasson, GK, er með á móti vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu, Galgorm Resort & Spa Northern Ireland Open.

Mótið fer fram í Galgorm, í Ballymena á N-Írlandi.

Axel lék 1. hring á 7 yfir pari, 78 höggum og er í einu neðstu sætunum.

Það lítur því ekki vel fyrir Axel með það að komast í gegnum niðurskurð að þessu sinni, en 2. hringur verður spilaður á morgun.

Efstir í mótinu eftir 1. dag eru Stuart Manley frá Wales og Minkyu Kim frá S-Kóreu, en báðir léku á 7 undir pari, 64 höggum.

Sjá má stöðuna á Galgorm Resort & Spa Northern Ireland Open með því að SMELLA HÉR: