Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir og Guðmundur Ágúst náðu ekki niðurskurði
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR voru báðir á meðal keppenda á Áskorendamótaröð Evrópu í þessari viku.
Mótið, sem þeir kepptu á, ber heitið Euram Bank Open og er keppt í GC Adamstal, í Ramsau, Austurríki og stendur 18.-21. júlí.
Hvorugur þeirra náði niðurskurði, sem var miðaður við samtals 1 undir pari eða betra.
Birgir Leifur lék á samtals 1 yfir pari, 141 höggi (71 70) og var aðeins 2 höggum frá því að ná niðurskurði.
Guðmundur Ágúst lék á samtals 5 yfir pari, 145 höggum (68 77). Guðmundur var enn í góðum málum eftir fyrri 9 á seinni keppnishring; búinn að fá 2 skolla og þurfti aðeins að herða sig til (hefði aðeins þurft 1 fugl til að ná niðurskurði) en í stað þess fór allt úrskeiðis því Guðmundur Ágúst fékk 3 skolla og 1 tvöfaldan skolla á seinni 9 og spilaði því seinni hringinn á samtals 7 yfir pari, sem var 9 högga sveifla frá fyrri degi!
Sjá má stöðuna á Euram Bank Open með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
