Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: seth@golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2019 | 20:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur og Guðmundur Ágúst T-15 e. 2. dag

Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), Íslandsmeistari í golfi 2019, og Birgir Leifur Hafþórsson (GKG), sjöfaldur Íslandsmeistari í golfi, eru báðir á meðal keppenda á Áskorendamótaröðinni í þessari viku.

Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd: Golf 1.

Mótið sem þeir spila í er Open de Bretagne og fer fram á Golf Bluegreen de Pléneuf Val André, í Frakklandi.

Eftir 2. dag eru þeir Guðmundur Ágúst og Birgir Leifur hnífjafnir; báðir búnir að spila á samtals 1 undir pari, 139 höggum (67 72) og eru T-15.

Ljóst erað báðir flugu í gegnum niðurskurð og spila um helgina.

Efstur í hálfleik er nýsjálenski kylfingurinn Josh Geary; en hann hefir spilað á samtals 5 undir pari, 135 höggum (68 67).

Sjá má stöðuna í Open de Bretagne mótinu með því að SMELLA HÉR:

Guðmundur Ágúst öðlaðist keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni með því að sigra á þremur mótum á Nordic Tour atvinnumótaröðinni á þessu tímabili. Mótið í Frakklandi er það fjórða á tímabilinu hjá Guðmundi. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur þeirra og besti árangur hans er 51. sæti.

Þetta er þriðja mótið á tímabilinu hjá Birgi á þessu tímabili. Hann hefur ekki komist í gegnum niðurskurðinn á fyrstu tveimur mótunum. Birgir Leifur hefur frá árinu 1999 leikið á þessari mótaröð.

Hann sigraði á einu móti árið 2017 og er hann eini íslenski kylfingurinn sem hefur sigrað á atvinnumótaröð í styrkleikaflokki nr. 2.