Birgir Leifur Hafþórsson verður með í Flórídaferðinni. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2019 | 21:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur og Guðmundur Ágúst báðir T-18 e. 3. dag

Þeir Birgir Leifur Hafþórsson, GKG og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR,  eru báðir hnífjafnir eftir 3. dag á Open de Bretagne mótinu, sem er mót vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu og fer fram á Golf Bluegreen de Pléneuf Val André, í Frakklandi.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: seth@golf.is

Birgir Leifur og Guðmundur Ágúst eru báðir búnir að spila á samtals 2 undir pari, 208 höggum (67 72 69) og eru T-18 þ.e. jafnir í 18. sæti ásamt 8 öðrum kylfingum.

Í efsta sæti er Þjóðverjinn Sebastian Heisele, á samtals 8 undir pari.

Til þess að sjá stöðuna á Open de Bretagne mótinu SMELLIÐ HÉR: 

Guðmundur Ágúst öðlaðist keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni með því að sigra á þremur mótum á Nordic Tour atvinnumótaröðinni á þessu tímabili. Mótið í Frakklandi er það fjórða á tímabilinu hjá Guðmundi. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur þeirra og besti árangur hans er 51. sæti.

Þetta er þriðja mótið á tímabilinu hjá Birgi á þessu tímabili. Hann hefur ekki komist í gegnum niðurskurðinn á fyrstu tveimur mótunum. Birgir Leifur hefur frá árinu 1999 leikið á þessari mótaröð.

Hann sigraði á einu móti árið 2017 og er hann eini íslenski kylfingurinn sem hefur sigrað á atvinnumótaröð í styrkleikaflokki nr. 2.