Birgir Leifur Hafþórsson verður með í Flórídaferðinni. Mynd: Golf 1. Áskorendamótaröð Evrópu: Birgir Leifur á 66 – lauk keppni T-7!!!! Glæsilegur!!!
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG tók þátt í D+D REAL Czech Challenge, sem var mót vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu.
Í dag átti Birgir Leifur stórglæsilegan lokahring upp á 6 undir pari, 66 högg.
Samtals lék Birgir Leifur á 13 undir pari, 275 höggum (69 70 70 66). Lokahringinn spilaði Birgir Leifur á stórglæsilegum 6 undir pari; fékk 7 fugla og 1 skolla!!!
Sigurvegari mótsins varð Minkyu Kim, frá S-Kóreu en hann var í sérflokki; lék á samtals 20 undir pari, 268 höggum (67 66 69 66). Í 2. sæti var Svíinn Sebastian Söderberg á 17 undir pari og síðan voru 4 kylfingar jafnir í 3. sæti á 14 undir pari.
Birgir Leifur deildi 7. sætinu með Skotanum Grant Forest og Dananum Joachim B. Hansen og voru þeir því í topp-10 keppenda!!! Já, Birgir Leifur er svo sannarlega eins og gott vín verður alltaf betri og betri og sannaði það í þessu móti!!!
Spilað var í Golf & Spa Kunětická hora, í Dříteč, Tékklandi.
Til þess að sjá lokastöðuna á D+D mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
