Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2018 | 06:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Axel hefur leik í Frakklandi í dag

Íslandsmeistarinn í höggleik 2018 og atvinnukylfingurinn Axel Bóasson, GK er með á móti vikunnar á Áskorenda- mótaröð Evrópu, Cordon Golf Open.

Mótið fer fram í Golf Bluegreen Pleneuf-Val-Andre í Pleneuf í Frakklandi, dagana 30.ágúst – 2. september 2018.

Með Axel í ráshóp eru sænski kylfingurinn Joel Sjöholm og heimamanninum Mathis Pansart, frá Frakklandi.

Rástíminn er kl. 13:00, sem er kl. 11 að íslenskum tíma.

Fylgjast má með gengi Axels og stöðunni á Cordon Golf Open með því að SMELLA HÉR: 

Mynd: GSÍ