Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2018 | 14:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Axel á 72 og Birgir Leifur á 73 e. 1. dag í Kenía

Atvinnukylfingarnir Birgir Leifur Hafþórsson, úr GKG, og Axel Bóasson úr GK, hófu keppni í morgun á Barclays mótinu sem er hluti af  Áskorendamótaröð Evrópu og fer fram í Kenía í Afríku, á Muthaiga vellinum dagana 22. – 25. mars.

Axel, sem er Íslandmeistari í golfi 2017, komst inn á mótið annarri viku í mars en hann var fyrsti maður á biðlista í upphafi þeirrar viku.

Birgir Leifur sigraði á einu móti í fyrra á þessari mótaröð og var það jafnframt fyrsti sigur hjá íslenskum kylfingi á mótaröð í næst efsta styrkleikaflokki atvinnukylfinga.

Axel er með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni eftir frábæran árangur á Nordic Tour atvinnumótaröðinni á síðasta ári. Hann varð stigameistari á Nordic Tour og tryggði sér keppnisrétt þannig. Axel fær takmarkaðan fjölda móta á þessu tímabili á meðan Birgir Leifur er með keppnisrétt á öllum mótum tímabilsins.

Á 1. degi Barclays mótinu lék Axel á 72 höggum en Birgir Leifur á 73.

Sjá má stöðuna á Barclays mótinu með því að SMELLA HÉR: