Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 31. 2018 | 17:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Axel á +3 e. 1. dag Swiss Challenge

Axel Bóasson, atvinnukylfingur úr GK, tekur þátt í móti vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu: Swiss Challenge presented by Association Suisse de Golf Sempachersee.

Mótið fer fram í Luzerne í Sviss á golfvelli Sempachersee golfklúbbsins.

Axel lék 1. hringinn á 3 yfir pari, 74 höggum – fékk 1 fugl, 2 skolla og 1 skramba.

Efstur eftir 1. dag er Þjóðverjinn Marcel Schneider, en hann lék 1. hring á 8 undir pari, 63 höggum.

Sjá má stöðuna á Swiss Challenge með því að SMELLA HÉR: