Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2018 | 18:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Axel á 72 e. 1. dag í Frakklandi

Íslandsmeistarinn í höggleik 2018 og atvinnukylfingurinn Axel Bóasson, GK hóf í dag keppni á Cordon Golf Open.

Mótið fer fram í Golf Bluegreen Pleneuf-Val-Andre í Pleneuf í Frakklandi og stendur dagana 30.ágúst – 2. september 2018.

Axel kom í hús á 2 yfir pari, 72 höggum og er T-85 eftir 1. dag.

Í efsta sæti er José-Filipe Lima frá Portúgal.

Sjá má stöðuna á Cordon Golf Open með því að SMELLA HÉR:

Mynd: GSÍ