Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: seth@golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2021 | 12:00

Áskorendamót Evrópu: Guðmundur Ágúst varð T-60 í Vaudreuil Golf Challenge

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnumaður úr GR, tók þátt í móti vikunnar á Áskorendamóti Evrópu, Vaudreuil Golf Challenge.

Mótið fór fram dagana 8.-11. júlí 2021 í Golf PGA France du Vaudreuil, Le Vaudreuil, í Frakklandi.

Guðmundur Ágúst lék á samtals 4 yfir pari, 288 höggum (69 69 75 75) og varð T-60 í mótinu.

Sigurvegari mótsins varð Þjóðverjinn Marcel Siem á samtals 15 undir pari.

Sjá má lokastöðuna á Vaudreuil Golf Challenge með því að SMELLA HÉR: