Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2012 | 09:00

Asíutúrinn: Daníel Chopra leiðir þegar Iskander Johor Open er hálfnað

Í Horizon Hills Golf & Country Club í Johor Bahru, Malasíu  fer fram dagana 13.-16. desember 2012 Iskander Johor Open.

Það er sænsk-indverski kylfingurinn Daníel Chopra, sem tekið hefir forystu þegar Iskander Johor Open er hálfnað, en í gær var það Sergio Garcia sem leiddi eftir 1. dag.

Chopra er búinn að spila á 10 undir pari, 134 höggum (68 66) og hefir 1 höggs forystu á þá Antonio Lascuna frá Filipseyjum, SSW Chowrasia frá Indlandi og Unho Park frá Ástralíu.

Sjötta sættinu deila síðan sex kylfingar sem allir spiluðu á 7 undir pari, 137 höggum en þ.á.m. er Sergio Garcia (68 69).

Bandaríski kylfingurinn David Lipsky er líka á 7 undir pari, en á eftir að spila 2 holur þegar þetta er ritað og gæti því stuðlað að því að ofangreind sætisröðun raskast.

Til þess að sjá stöðuna þegar Iskander Johor Open er hálfnað SMELLIÐ HÉR: