A Arnold Palmer sendi einkaþotu sína eftir Lauru Davies
Allir kylfingar þekkja golfgoðsögnina Arnold Palmer.
Margir þekkja hann vegna þess að hann bjó til alveg hreint æðislegan drykk, en flestir kannast við Arnie vegna þess að hann er einstaklega geðþekkur og góður náungi.
Hann er alveg yndislegur og sannaði það í milljarðasta skipti nú í vikunni þegar hann sendi einkaþotu sína eftir golfdrottningunni Lauru Davies þannig að hún myndi ekki missa af vígsluathöfn sinni í frægðarhöll kylfinga, en beðið hefir verið eftir þeirri athöfn lengi og í raun óskiljanlegt af hverju Davies hlýtur ekki vígslu fyrr en nú.
Laura kom til London nú s.l. mánudag eftir að hafa tekið þátt í Opna bandaríska kvenrisamótinu og síðan var flugi hennar til Skotlands frestað sem þýddi að hún myndi missa af vígsluathöfninni.
Arnold Palmer bauð henni þá far í einkaþotu sinni, en málið gekk síðan samt sem áður ekki upp og Davies komst ekki í vígsluathöfnina í einkaþotu Palmer. Arnie reyndi sitt besta þó í góðmennsku sinni.
Búið var að taka upp þakkarræðu Davies sem hlaut vígsluna engu að síður, en hún reyndi síðan að koma sér til St. Andrews í bíl og var að horfa á vígsluathöfnina í sjónvarpi í bílnum …. þegar kom að þeim stað þar sem hún kom fram og flutti þakkarræðu, sem tekin hafði verið upp.
Þá slitnaði útsendingin í bílnum af óskiljanlegum ástæðum – ja það á ekki af Davies að ganga, hún var ekki viðstödd vígsluna og missti meira að segja að sjálfri sér í sjónvarpinu! En í frægðarhöllina er hún komin …. þó fyrr hefði verið!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
