Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2018 | 09:00

Árið gert upp – Helstu innlendu golffréttir í janúar 2018

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG var útnefndur íþróttakarl Kópavogs árið 2017,  á íþróttahátíð Kópavogs, sem fram fór í íþróttamiðstöðinni Kórum, í Kópavogi, 11. janúar 2018.

Þann 13.-16. janúar 2018 kepptu 3 íslenskir kylfingar Saga Traustadóttir (GR), Helga Kristín Einarsdóttir (GK) og Aron Snær Júlíusson (GKG) á Opna Suður-Ameríska áhugamannamótinu (Abierto Sudamericano Amateur 2018) sem fram fór á Martindale Country Club í Buenos Aires í Argentínu. Alls tóku 25 þjóðir þátt í mótinu. Aron Snær varð T-42 af 69 keppendum á 7 yfir pari, 295 höggum (72 80 67 76); Helga Kristin og Saga T-46 af 52 keppendum.

Tilkynnt var um miðjan janúar 2018 að Heiðar Davíð Bragason hefði verið ráðinn yfirgolfkennari GA.

Fyrsta skóflustungan var tekin að nýrri frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi föstudaginn 19. janúar 2018.

Púttmótaröð GR kvenna hófst 23. janúar 2018.

Í janúar voru fréttir þess efnis að Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefði hitt John Rahm í hittingi á vegum KPMG, sem er styrktaraðili beggja og eins og hún væri við æfingar í Flórída með fagteymi GSÍ og væri með nýjan kylfusvein, Gary Wildman.

Þann 23. janúar 2018 hófu 6 íslenskir kylfingar á aldrinum 17-23 ára keppni á 1st Octagonal Match mótinu sem fram fór á Costa Ballena á Spáni. Þetta voru þeir Henning Darri Þórðarson (GK), Vikar Jónasson (GK). Tumi Hrafn Kúld (GA), Hlynur Bergsson (GKG), Hákon Örn Magnússon (GR) og Jóhannes Guðmundsson (GR). Lið Íslands varð í 8. sæti.

Þann 26. janúar 2018 varð Ólafía Þórunn „okkar” Kristinsdóttir T-26 á Pure Silk Bahamas LPGA Classic, sem reyndist vera hennar besti árangur á árinu 2018. Vegna þessa árangurs Ólafíu Þórunnar fór hún úr 175. sæti Rolex- heimslistans í 170. sætið, sem er hennar besti árangur á heimslistanum.