Ragnheiður Jónsdóttir | september. 10. 2013 | 19:00

Anna Sólveig í 12. sæti

Nú er lokið leik á 1. degi Duke of York mótsins, sem fer fram á Royal St. George´s vellinum í Englandi.

Þátttakendur eru 56 frá 32 þjóðlöndum og fulltrúar okkar Íslendinga eru  Anna Sólveig Snorradóttir, GK og Aron Snær Júlíusson, GKG.

Anna Sólveig lék 1. hring á 77 höggum og fékk 1 fugl, 10 pör, 6 skolla og 1 skramba.  Hún er í 12. sæti, sem hún deilir með 6 öðrum kylfingum.

Aron Snær er í 19.-22. sæti en hann lék á 78 höggum.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á The Duke of York Young Champions Trophy SMELLIÐ HÉR: