Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 12. 2015 | 12:30

Anna prinsessa meðal 7 fyrstu kvenna sem fengu inngöngu í R&A

Anna Bretaprinsessa, dóttir Elísabetar Englandsdrottningar er meðal fyrstu 7 kvenna sem fengu heiðursfélagsaðild (ens. honorary membership) að Royal&Ancient, fyrstar kvenna.

Heimavöllur félaga R&A er St. Andrews völlurinn, sem oft er nefndur vagga golfíþróttarinnar.

R&A var stofnað 1754 og það tók klúbbinn 260 ár að ákveða að konur mættu verða félagar í golfklúbbnum, en ákvörðun um það var tekin í september 2014, eftir atkvæðagreiðslu félaga klúbbsins.

Konum hafði fram að því verið meinuð aðild að R&A, þó þær hafi mátt spila á völlum klúbbsins.

Powell og Sörenstam báðar heiðurfélagar í R&A

Renee Powell og Annika Sörenstam báðar heiðurfélagar í R&A

Aðrar konur sem hlutu heiðursfélagaaðild eru: Annika Sörenstam, Dame Laura Davies en þær báðar hafa þegar hlotið inngöngu í frægðarhöll kylfinga; Renee Powell, ein fyrsta blökkukonan til þess að spila á LPGA; Belle Robertson (f. McCorkindale), skoskur kylfingur sem var 9 sinnum í Curtis Cup – tvisvar sinnum sem fyrirliði; Lally Segard (f. Vagliano, sem bikarinn er nefndur eftir) frönsk hertogaynja af de Saint-Sauveur, einn besti franski kvenkylfingur allra tíma, sigraði m.a. á British Girls’ Championship árið 1937  og Louise Suggs, en sú síðastnefnda var meðal stofnenda LPGA.

Þess ber að geta að R&A stóð sig mun betur en Augusta National, sem fram til þessa hefir aðeins opnað dyr sínar fyrir tveimur konum; Condoleezu Rice og Dörlu Moore, en varð þó fyrri til að veita konum félagsaðild.