
Andri Þór úr leik
Andri Þór Björnsson (GR) er úr leik á Opna breska áhugamannamótinu eftir 2&1 tap gegn Frakkanum Daydou Alexandre í 16-manna úrslitum á Carnoustie vellinum í Skotlandi. Alls komust þrír íslenskir kylfingar í 32 manna úrslit mótsins en Gísli Sveinbergsson (GK) og Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR) féllu úr leik í morgun. Andri Þór var sá eini komst áfram með öruggum sigri gegn Michele Cea frá Ítalíu 4/3. Gísli tapaði gegn Skotanum Grant Forrest 3/1 og Guðmundur Ágúst tapaði gegn Mateusz Gradecki frá Póllandi 1/0.
Staðan á mótinu:
Fyrir ári síðan komst Haraldur Franklín Magnús í 8 manna úrslit á þessu móti – sem er besti árangur hjá íslenskum kylfingi á þessu sögufræga móti.
Það er að miklu að keppa á þessu móti þar sem að sigurvegarinn fær keppnisrétt á sjálfu Opna breska meistaramótinu sem fram fer á St. Andrews í Skotlandi í júlí. Að auki fær sigurvegarinn keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu sem fram fer á Oakmont Country vellinum á næsta ári, og sjálfu Mastersmótinu á Augusta á næsta ári.
Árangur íslensku keppendanda er ótrúlega góður þar sem að tæplega 300 kylfingar tóku þátt og aðeins 64 efstu komust áfram í holukeppnina sem tók við eftir 36 holu höggleik.
Opna breska áhugamannamótið fer fram að þessu sinni í Skotlandi en mótið fer fram á tveimur völlum, Carnoustie og Panmure Angus. Þetta er í 120. sinn sem þetta sögufræga mót fer fram. Fyrstu tveir keppnisdagarnir eru höggleikur þar sem keppendur spila um að komast í sjálfa holukeppnina.
Alls tóku sjö íslenskir kylfingar þátt en alls tóku 288 kylfingar þátt frá 30 mismunandi þjóðlöndum. Tekið er mið af stöðu kylfinga á heimslista áhugamanna á þessu móti og aðeins þeir stigahæstu á þeim lista komast inn.
Andri Þór Björnsson úr GR, Gísli Sveinbergsson, GK og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR náðu allir að komast í hóp 64 efstu.
Guðmundur Ágúst lék best allra af íslensku keppendunum en hann endaði í þriðja sæti á – 5 (71-66), Gísli og Andri voru jafnir á +1 samtals í 49. sæti.
Aron Júlíusson, GKG, (72-72) +2
Haraldur Franklín Magnús, GR (76-73) +6
Rúnar Arnórsson, GK, GK (77-72) +7
Ragnar Már Garðarsson, GKG (85-74) + 17
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024