Andri Þór Björnsson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2016 | 07:00

Andri Þór, Guðmundur Ágúst og Haraldur Franklín taka þátt á HM áhugamanna

Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, hefur valið þrjá kylfinga sem taka þátt á HM áhugamanna fyrir Íslands hönd.

Mótið fer fram í Mexíkó en þar er keppt um Eisenhower verðlaunagripinn.

Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og  verða fulltrúar Íslands á þessu móti en þeir eru allir úr Golfklúbbi Reykjavíkur.

Heimsmeistaramótið fer fram dagana 21.-24. september n.k.