Andrea lauk keppni T-9 á Írlandi
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir (GR) og Andrea Bergsdóttir (GKG) tóku þátt Opna írska meistaramótinu fyrir keppendur 18 ára og yngri.
Keppt var á Roganstown Golf Club rétt utan við Dublin. Keppendur voru alls 114 á þessu móti sem er í háum styrkleikaflokki í þessum aldursflokki.
Sjá má lokastöðu keppenda í mótinu með því að SMELLA HÉR:
Að loknum öðrum keppnisdegi komust 50 efstu keppendurnir í gegnum niðurskurðinn. Keppt var í einstaklings – og liðakeppni á þessu móti.
Andrea náði góðum árangri og lauk keppni T-9 eða í 9.-13. sæti. Hún lék samtals á 13 yfir pari, 226 höggum (74-77-75). Kajsa Arwefall frá Svíþjóð sigraði á samtals 4 yfir pari. Andrea er í GKG en hún er í búsett í Gautaborg í Svíþjóð og leikur einnig með Hills golfklúbbnum.
Jóhanna Lea er úr Golfklúbbnum í Reykjavík. Hún lék á +22 samtals á fyrstu tveimur keppnisdögunum. Hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
Mynd og texti: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
