Andrea Bergsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2018 | 13:30

Andrea hefur leik á Opna breska áhugamannamótinu í dag

Andrea Bergsdóttir úr GKG hefur leik í dag á Opna breska áhugamannamótinu fyrir kylfinga 18 ára og yngri.

Í dag er leikinn höggleikur og komast 64 áfram í holukeppnina, sem tekur við í framhaldinu.

Andrea er búsett í Svíþjóð en hefir á undanförnum misserum spilað með stúlknalandsliði Íslands.

Hún verður í A-landsliði kvenna sem leikur á Heimsmeistaramóti áhugakylfinga á Írlandi í lok ágúst.

Motið fer fram á Ardglass vellinum rétt suður af Belfast.

Til þess að sjá skor keppenda SMELLIÐ HER: