Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2014 | 08:00

ALPG&LET: Woods ein efst e. 3. dag

Frænka Tiger Woods og fyrrum liðsfélagi Ólafíu Þórunnar í Wake Forest, Cheyenne Woods er nú búin að tylla sér í efsta sæti Volvik RACV Ladies Masters, fyrir lokadaginn.

Cheyenne hefir nauma forystu á þær sem næstar koma; er búin að spila á samtals 12  undir pari, 207 höggum (69 67 71).

Stacy Lee Bregmann frá Suður-Afríku er í 2. sæti á 11 undir pari; Minjee Lee í 3. sæti á 10 undir pari og svo deila Camilla Lennarth frá Svíþjóð og Trish Johnson 4. sætinu á samtals 9 undir pari hvor.

Til þess að sjá stöðuna á Volvik RACV Ladies Masters eftir 3. keppnisdag SMELLIÐ HÉR: