
ALPG: Lydia Ko dregur sig veik úr Riversdale Cup eftir að hafa verið í forystu eftir 1. dag
Besti kvenáhugakylfingur heims, hin 14 ára, ný-sjálenska Lydia Ko dró sig úr Riversdale Cup mótinu eftir að hafa verið í forystu eftir 1. hring í Melbourne.
Lydia var á -3 undir pari, 70 höggum eftir 1. hring á Riversdale Cup og átti 2 högg á löndu sína Emily Perry og hina áströlsku Lauren Hibbert (báðar á 72).
Þegar hún vaknaði í morgun var Lydiu hins vegar óglatt og hana svimaði. Hún dró sig því úr mótinu og mun læknir meta hvort hún geti haldið dagskrá sinni, en til stóð að hún myndi spila á móti í Kína í næstu viku.
Lydia sem er frá North Harbour var greinilega þreytt eftir að ljúka leik T-17 á ISPS Handa NZ Women’s Open í Christchurch, Nýja-Sjálandi s.l. helgi.
Í fyrra sigraði landa hennar, Cecilia Cho frá Nýja-Sjálandi Riversdale Cup og Lydia varð í 2. sæti.
Á hringnum í gær fékk Lydia 2 skolla og 5 fugla og hafði yfirburði yfir aðra áhugamenn á Riversdale Cup.
Heimild: iseekgolf.com
- október. 1. 2023 | 16:16 Ryder Cup 2023: Áhangendur streymdu á Marco Simone eftir sigur liðs Evrópu 16,5-11,5
- október. 1. 2023 | 15:40 Ryder Cup 2023: Fleetwood innsiglar sigur liðs Evrópu!!!
- október. 1. 2023 | 15:10 Ryder Cup 2023: Hovland, Rory og Hatton unnu sínar viðureignir – Rahm hélt jöfnu – Vantar bara 1/2 stig núna!!!
- október. 1. 2023 | 12:00 Ryder Cup 2023: Tvímenningsleikir sunnudagsins
- október. 1. 2023 | 08:00 Ryder Cup 2023: Evrópa 10,5 – Bandaríkin 5,5 e. 2. dag
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023