ALPG & LET: Ko og Shin í forystu fyrir lokahring ISPS Handa Australian Open
Það eru Lydia Ko og Jiyai Shin sem leiða fyrir lokahring ISPS Handa Australian Open.
Báðar eru þær búnar að leika á samtals 17 undir pari, 202 höggum; Lydia (63 69 70) og Shin (65 67 70). Báðar eru undantekningarlaust á braut, hreinlega kljúfa þær með óaðfinnanlegum höggum sínum og ótrúlega einföldum leikáætlunum.
Veðrið á Royal Canberra í morgun var heldur ekki til að kvarta undan, yndislega þægilegur hiti og glitrandi sólskin.
Hápunktur dagsins fyrir Shin var þegar hún setti niður glompuhögg við par-5 6. flötina. Bönkerinn var svo djúpur að hún sá ekki einu sinni bolta sinn fara ofan í holuna. „Ég var of stutt til þess að sjá þetta“ sagði Shin eftir á.
Ko, fór út í næstsíðasta hollinu. Hún byrjaði vel fékk 4 fugla á fyrstu 10 holum sínum og var í forystu, en svo seig aðeins á ógæfuhliðina þegar hún fékk skolla á 12. og 14. braut, en hún lauk hringnum á fugli á 18. og jafnaði því við Shin en báðar voru á 70 höggum.
Þetta verður einvígi á milli þeirra því sú sem næst kemur á eftir þeim í 3. sætinu, Beatriz Recari, frá Spáni er heilum 6 höggum á eftir þeim stöllum. Recari er samtals búin að spila á 11 undir pari, 208 höggum (68 69 71).
Fimm deila síðan 4. sætinu þ.e. forystukona gærdagsins Mariajo Uribe frá Kólombíu, nr. 1 á Rolex-heimslistanum Yani Tseng, nr. 1 í Evrópu 2012 Carlota Ciganda, sú sem varð nr. 1 á lokaúrtökumóti Q-school LPGA 2012 Moriya Jutanugarn frá Thaílandi og gamla kempan Gwladys Nocera frá Frakklandi. Allar eru þær á samtals 9 undir pari, 210 höggum og allar og þurfa þær kraftaverkahringi á morgun til þess að vinna upp þau 8 högg sem munar á þeim og forystukonunum.
Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á ISPS Handa Australian Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
