Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 24. 2015 | 12:55

Allenby rak kaddýinn sinn á miðjum hring

Ástralski kylfingurinn Robert Allenby virðist ætla að eiga ár að endemum.

Í byrjun árs vakti Allenby athygli á sér eftir að hann var að eiginn sögn fyrir árás, mannráni auk þess sem öllu verðmætu var stolið af honum og hann barinn.  Síðar komu í ljós ýmsir hnökrar í frásögn Allenby og hefir í raun aldrei neitt komið út úr málinu annað en að hann var skrámaður í andliti og maður var handtekinn fyrir að nota kreditkort Allenby og taka út af þeim stórar fjárhæðir.

Nú á móti vikunnar á PGA mótaröðinni, RBC Canadian Open, rak hann kaddýinn sinn í miðjum 1. hring.

Það hófst á því að Allenby var að slá aðhögg sitt á par-5 13. holunni í Glen  Abbey golfklúbbnum í Oakville, Ontario allt of stutt. Kaddý Allenby,  Mick Middlemo stakk upp á að hann notaði 8-járn, sem Allenby notaði þó að hann hefði sjálfur vilja nota 7-járn.  Það endaði í þreföldum skolla og þá missti Allenby stjórn á skapi sínu.

„Ég sagði við hann (þ.e. kaddýinn Middlemo): „Veistu þetta kemur fyrir í hverri viku. Þetta hefir gerst s.l. 3, 4 eða 5 mánuði. Við höfum gert slæm mistök og þú ert ekkert að hjálpa mér í þessum kringumstæðum,“ sagði Allenby eftir 1. hring í Kanada, sem hann spilaði á 81 höggi.

Hann bara tapaði sér gagnvart mér,“ hélt Allenby áfram. „Hann sagði mér bara að fara til fj…“ Og ég (Allenby) sagði: „Sjáðu til þú verður að róa þig. Ég meina slakaðu á.  Og þá kom hann alveg í andlit mér eins og hann vildi slá mig og ég sagði við hann: „Hættu að vera svona mikill svona og svona og slakaðu á og komdu þér aftur í leikinn.  Hann bara kom nær og nær og ég sagði: „Nú er nóg komið. Þú ert rekinn.“ Ég sagði: „Ég sjá til þess að þú verðir aldrei kaddý aftur.“ Og við töluðumst ekkert við (á fyrstu 9) og þegar við komum á 18 (þeir byrjuðu á 10. teig) og við gengum af velli og ann var með eitthvert skammaryrði við mig og ég sagði: „Þú átt það ekki skilið að vera kaddý. Og hann bara kom ógnandi að mér, hótaði mér, þannig að ég sagði: „Farðu. Og hann fór.“

Allenby tók síðan áhanganda sem var áhorfandi á mótinu, Tom Fraser upp á boði sínu að koma í stað Middlemo. Fraser var kaddý það sem eftir var hringsins með aðstoð annarra kaddýa í ráshópnum.

Allenby spilaði á 81 og varð í síðasta sæti.

„Þetta er það versta sem komið hefir fyrir mig sem leikmann,“ sagði Allenby. „Mér hefir aldrei verið hótað en þegar við gengum af vellinum sagði hann við mig: „Ég bíð eftir þér á bílastæðinu.“

Hann er Ástrali og hann hegðaði sér ekki eins og Ástrali; segjum það bara,“ sagði Allenby loks.