
Ákvarðanir R&A um reglu 6-3 a – (2. grein af 5)
Á fimmtudaginn í s.l. viku, 21. mars 2013 fór fram fræðslu- og umræðufundur dómaranefndar GSÍ um hvað gera megi til að bæta leikhraða á golfvöllum.
Þórður Ingason, alþjóðadómari ræddi á fundinum um „5 mínútna regluna“ svokölluðu, þ.e. reglu 6-3a í golfreglum R&A. Reglan gengur út á að ef kylfingur mætir allt að 5 mínútum of seint á teig eigi hann ávallt rétt á að hefja leik gegn viðurlögum upp á 2 högg í víti. Mæti hann seinna sætir hann frávísun. Mæti kylfingur meira en 5 mínútum of seint hlýtur hann frávísunarvíti.
Á reglu 6-3 a er undantekning. Þ.e. mótsnefnd (hér nefnd Nefndin) getur ákveðið að ekki skuli koma til þessara 2 högga í víti mæti kylfingur allt að 5 mínútum of seint, eigi sérstök undantekningartilvik við um kylfing, sem hafi orðið þess valdandi að hann mætti of seint á teig. Þessi undantekningtilvik eru túlkuð mjög þröngt.
Meðal efnis í ræðu Þórðar voru 5 nýlegar ákvarðanir R&A um túlkun á 5 mínútna reglunni. Golf 1 hefir þegar fjallað um eina af þessum 5 ákvörðunum R&A og hér fer ákvörðun nr. 2
Úrlausnarefni ákvarðananna eru settar fram í spurnarformi og síðan ákvörðunin/reglan gefin í svari við spurningunni.
Spurning: Í höggleikskeppni eiga 3 keppendur A, B og C að hefja leik á rástíma, sem er kl. 9. A og B voru mættir á teig á þeim tíma en C kom kl. 9:02 þ.e. 2 mínútum of seint og eftir að A og B voru báðir búnir að slá, en á réttum tíma til þess að geta slegið. Hvernig dæmist?
Svar: Þar sem C var mættur og tilbúinn að hefja leik innan 5 mínútna eftir rástíma sinn þá hlýtur hann 2 högga víti (sbr. reglu 6-3a). Ef C hefði komið meira en 5 mínútum eftir rástíma sínn hefði hann hlotið frávísunarvíti. Ef Nefndin ákveður að sérstakar kringumstæður hafi hamlað C frá því að hefja leik á tíma þá er ekkert víti. Allir keppendur í ráshópnum verða að vera viðstaddir og tilbúinir að spila á þeim tíma sem Nefndin ákveður, í þessu tilviki kl. 9:00. Röðin sem kylfingar eiga að slá í skiptir engu máli.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024