Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Zane Scotland —— 17. júlí 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Zane Scotland. Zane er fæddur 17. júlí 1982 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2003 og sigraði 11 sinnum á atvinnumannsferli sínum 1 sinni á PGA EuroPro Tour og 11 sinnum á MENA mótaröðinni. Besti árangur í risamóti er T-55 árangur á Opna breska 2010.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Páll Eyvindsson, GÁ, 17. júlí 1954 (68 ára); Guillermo Salmerón Murciano, 17. júlí 1964 (58 ára); Steven O´Hara, skoskur, 17. júlí 1980 (42 ára) ; Zane Scotland, 17. júlí 1982 (40 ára); Lizette Salas, 17. júlí 1989 (33 ára); Bílkó Smiðjuvegi (33 ára) …. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is