Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2016 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———- 23. janúar 2016

Afmæliskylfingur dagsins í dag er taíwanski kylfingurinn og 5-faldur sigurvegari risamóta, Yani Tseng (á kínversku: 曾雅妮). Yani fæddist 23. janúar 1989 í Gueishan, Taoyuan í Taíwan og er því 27 ára í dag. Golf 1 hefir áður kynnt afmæliskylfinginn Yani, sem sjá má með því að smella hér: YANI TSENG

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Valgeir Guðjónsson, 23. janúar 1952  (64 ára); Soffía Margrét Hafþórsdóttir, 23. janúar 1972 (44 ára);

Golf 1 óskar afmæliskylfingum dagsins innilega til hamingju með daginn!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is