Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2012 | 12:50

Afmæliskylfingur dagsins: Laufey Sigurðardóttir – 26. apríl 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Laufey Sigurðardóttir, GO. Laufey er fædd 26. apríl 1967 og á því 45 ára afmæli í dag  Laufey hefir tekið þátt í mörgum innanfélagsmótum, m.a. púttmótum  hjá GO sem opnum mótum og staðið sig vel. Hún er í stjórn Golfklúbbsins Odds. Laufey er gift Bjarka Sigurðssyni og eiga þau synina Sigurð Björn og Arnór Inga.
Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mac O’Grady, 26. apríl 1951 (61 árs);  Nancy Scranton, 26. apríl 1961 (51 árs); Clodomiro Carranza, 26. apríl 1982 (Argentínumaðurinn á 30 ára stórafmæli í dag!!!); J.B. Holmes, 26. apríl 1982 (Bandaríkjamaðurinn á 30 ára stórafmæli í dag!!!);  Adriana Zwanck, 26. apríl 1986 (26 ára)….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is